Útskýring á flokkunarkerfi tækja
Til að ákveða í hvaða flokk tæki fellur eru þau skoðuð vandlega útlitslega og virkniprófuð. Við seljum síma sem erum með flokkun A og B. Tæki sem virkar ekki eðlilega fær ekki einkunn A-B.
Útlitskoðun og flokkun
Hvert tæki er skoðað í 15-20 sekúndur í 40-50cm augnfjarlægð. Tæki sem lítur fullkomlega út en er með eina djúpa rispu á skjá eða baki fær ekki A einkunn. Almennt líta tæki betur út en einkunn gefur til kynna.
Lýsing á tækjum sem fara í A flokk.
Tækið lítur mjög vel út með minniháttar ummerkjum um notkun. Á ramma og skjá má mögulega finna smáar rispur sem sjást ekki í 50cm fjarlægð. A tæki er vissulega notað en er í mjög góðu ástandi.
Lýsing á tækjum sem fara í B flokk.
Ummerki um notkun í meðallagi, getur verið að stöku dýpri rispur séu á skjá og/eða ramma og mögulega minni beyglur eða mislitur í skjá.
Öll tæki fara í eftirfarandi virkniprófum:
Kveikir tæki á sér og helst í gangi á hleðslutækis.
Er skjárinn gallalaus.
Virkar tækið eins og það á að gera.
Allar aðgerðir prófaðar.
Hefur tækið minniháttar útlitsgalla sem hefur ekki áhrif á virkni þess.
Öll tæki eru með batterí „capacity“ 80% eða meira ef tækið er yngra en 2016 árgerð.
Hugsaðu um umhverfið !

Svona er ferlið:
- Þú kemur við í verslun okkar á jarðhæð Kringlunnar með síma sem þú vilt selja.
- Ef sími er í lagi þá er best að þú sért búin/n að hreinsa símann áður en þú kemur til okkar.
- Ef skjár er t.d. brotinn þá getum við hreinsað símann en nauðsynlegt er að þú látir okkur hafa þær upplýsingar sem þarf til.
- Við kaupum EKKI notaða síma án þessara upplýsinga, þetta er gert til að fyrirbyggja viðskipti með stolna muni.
- Okkar tæknimenn fara yfir símann og ef ekkert óvænt kemur uppá þá greiðum við með millifærslu innan nokkurra daga.
Viltu selja símann þinn til okkar – Smelltu hér
.
Ég vil kaupa notaðan síma – Smelltu hér

